31.12.2007 | 12:31
Annáll 2007
Janúar
· Ég flutti í Kópavoginn til Hrefnu frænku og Stefáns
· Hóf nám við Menntaskólann í Kópavogi í þeirri von um að klára stúdentinn sem fyrst
· Byrjaði að vinna á McDonalds Smáratorgi, og kynntist yndislegu fólki þar
· Mikið djamma og allskonar rugl sem að fylgdi því Hittingur hjá Lóu 13.jan
Febrúar
· Litla prinsessan fæddist, Jóhanna María
· Frænkan beið spenntust í borginni eftir að sjá hana, en alltof langur tími leið þangað til að ég sá hana
· Djammið var óstöðvandi
· Byrjaði í sambandi sem entist ekkert og mikið rugl og vesen fylgdi því
· Ekki enn farin vestur á firði Ég með Jóhönnu Maríu gullmolann minn
Mars
· Skólinn, djammið og félagslífið komið á fullt....
· Sjóslys varð fyrir vestan sem var alveg hreint hrikalegur atburður
· Ekki enn farin vestur á firði!!!
Apríl
· Árshátíð McDonalds var, og eftirpartý heima hjá Víði... Fór vestur daginn eftir...
· Fór vestur til Ísafjarðar yfir páskana og sá þá Jóhönnu Maríu í fyrsta skiptið!
· Brói kom í heimsókn yfir páskana með börnin sín þrjú
· Aldrei fór ég suður hátíðin stóð svo sannarlega fyrir sínu
· Klikkað djamm á okkur Karen og tequila var sko málið þar á ferð.
· Hitti marga brottflutta og þeir sem búa enn á ísafirði, alltaf gaman að hitta gamla félaga
· Kynntist Svenna mínum Við Karen á Aldrei fór ég suður.... Tequila úje!
Maí
· Hitti Svenna í fyrsta skiptið
· Byrjuðum saman þann 7 en lét engan vita af því
· Skólinn kláraðist og vinnan tók við Svenni minn
Júní
· Tilkynnti fólki að við Svenni værum byrjuð saman og allir tóku vel í það
· Gerði ekkert annað en að vinna!!!
Ég klippti um 50 cm af hárinu á mér Fyrir (Sítt hár)
Eftir hárið mun styttra!
Júlí
· Fór á ættarmót hjá ömmu Ásgerði og systkinum hennar
· Svenni kom með, og skildi eftir sig stórt spor í ættinni
· Svakalegt vatnsstríð varð á ættarmótinu,bara gaman
· Við Svenni fórum í útilegu á Þingvöllum
· Ókum um allt þar,skoðuðum Gullfoss og Geysi fórum í sund og löbbuðum í klettunum á Þingvöllum
· Fórum í Draugasafnið á Stokkseyri og Dýrasafnið líka þar. Rosalega gaman að sjá Svenni að rennbleyta Stefán
Ágúst
· Fór til Ungverjalands með Karen og vorum þar í þrjár vikur
· Byrjuðum á að eyða smá tíma í Danmörku
· Flugum svo til Ungverjalands
· Skoðuðum Budapest, Debrecen og heimabæ hennar Karenar, Nyíregyháza
· Ég varð 21 árs og fékk mér tattoo á afmælisdeginum
· Við lentum í svakalegri rigningu seinasta daginn okkar
· Löng bið beið okkar svo í Danmörku
· Ég þurfti að henda handklæði úr töskunni, því hún var of þung
· Skólinn byrjaði eina ferðina enn Við svo sannarlega blautar eftir rigninguna
Ég, Karen og Gugi eftir rigninguna miklu! Voða gaman
September
· Skólinn og vinnan byrjuð á fullu
· Ekkert merkilegt gerðist þennan mánuðinn ....
Október
· Skólinn á fullu,ekkert nema stanslaus próf og læti
· Ég skrapp Vestur yfir löngu helgina
· Fékk viðvörun úr skólanum venga slæmrar mætingu
Nóvember
· Afi áttræður og við Svenni skelltum okkur ásamt Kristóferi vestur í tilefni afmælisins hans afa
· Svakalega stór og skemmtileg veisla. Gaman að hitta allt fólkið líka
· Þurftum að keyra suður,þar sem að veðrið var ekki skemmtilegt og við þurftum að komast suður vegna vinnu og skóla
· Skólinn var alveg á milljón,ég vissi varla hvað snéri upp né niður
· Ég hætti á McDonalds, jibbý yay!!
Desember
· Lokaprófin byrjuðu
· Ég náði þeim öllum nema fjarnáminu
· Ég þurfti að kveðja eina ferðina enn stúdentinn... L
· Mamma,pabbi og Stefán komu suður og héldu jólin þar
· Vorum 12 saman heima hjá Hrefnu á aðfangadagskvöld
· Yndislegur tími alveg
· María og Birkir eignuðust dóttir á aðfaranótt Jóladags
· Fór vestur milli hátíða og var þar yfir áramótin Aðfangadagskvöld í Jórsölum 5
Að lokum vil ég þakka fyrir árið sem er að líða og óska öllum farsældir á nýju ári
Um bloggið
Þér kemur það bara ekkert við
Bloggvinir
Tenglar
Í minningu um:
Krílin
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
flott blogg skvís!! og það má nú segja að árið hjá þér hafi bara verið ljómandi gott:)
en gleðilegt nýtt ár! og takk fyrir skutlið í gær! :*
Guðbjörg E (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 16:33
góður annáll
Ólafur fannberg, 8.1.2008 kl. 06:58
Haha vá hvað ég myndi aldrei ná að gera svona man ekkert hvað ég var að gera ... en skrítið hvað þú hættir að djamma þarna í byrjun mai ?? :O
Gunnar Már (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 00:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.